Velcome blogger
Ytri blogg
19.03.2007 19:16:22 / Icefalcon

Mánudagur

 

Jæja Skattaskýrslan búinn og mikið er ég feginn að hafa Báru systir þarna að klára þetta. Skil ekki hvað þetta fer í taugarnar á mér og ég stressast allur upp. Alltaf eitthvað hræddur við að eitthvað skili sér ekki rétt eða að eitthvað vanti uppá. Nú jæja eftir gjörningin að þá mættu hjónakornin Bára og Hörður í mat og hafði ég staðlaðann hrygg með öllu fannst hann bara heppnast ágætlega. Eitthvað rann af rauðvíni með þessu öllu en ég hafði ákveðið að vinna á sunnudegi þannig að ég var mjög stilltur í drykkjunni. Bjarki leigði víst bústað fyrir austann og á aðfararnótt sunnudags kom ástand sem hann réði ekkert við en hópur af strákum úr öðrum bústað vildi komast inn til Bjarka og co en þeir voru 8 stykki saman komnir með Bjarka og töldu þeir sig vera nokkuð sterkir þangað til að bankið kom og voru þar mun fleirri strákar sem vildu komast inn en komust ekki. Brutu þeir þá rúðu í hurðinni og komust þannig inn en samkvæmt frásögn Bigga en hann fór með Bjarka á sunnudagskvöldið að þríf að þá var allt á hvolfi þarna og blóð um allt sem og rúðubrot úr hurðinni. Hafði ég samband við Einar sem ér um bústaðamál fyrir VR og erum vuið að meta frásagnir og annað sem upp hefur komið um hvernig staðan er hjá Bjarka en hann er jú ábyrgur þar sem hann leigði bústaðinn á sínu nafni. Frétt kom í morgunblaðinu sem og útvarpi um uppistand þetta og greinilegt að hér er vísir að ákveðnu vandam´li sem stéttarfélögin verða að fara að taka á. Biggi Bjarki Toggi og tvær skvísur á vegum Togga og Bigga fóru uppeftir að þrífa og þegar komið var að afleggjarnanum að þá hafði fennt ansi vel í förin og voru þeir smeykir um að festa bílinn (skodann minn) en þeir létu vaða og að sjálfsögðu komust þeir alla leið. Ekkert er að frétta af íbúðarmálum (steindauð sala) og er ég ekkert stressaður vegna þess að íbúðin sme mig langaði í er seld og nú er bara að finna aðra sem hentar. Ekki er mikið að ske hérna í vinnunni annað en að ég er enn einn í öllu þessu og ekki vitað hvenær ég hætti að vinna í mono en hingað til hefu rverið nóg að gera fyrir 2 þ.e.a.s steríó.   Klukkan er 19:00 og ég er orðinn svangur borðaði ekkert í hádeginu er orðinn leiður á öllum þessum fiski. En nú er ég að fara heim enda var Bjarki að logga sig inn og byrja að skrifa frásögn um hvernig lætin byrjuðu þarna uppfrá en Einar vill fá frásögn frá hans  eigin vörum um hvernig í málunum var háttað og senda sér það í þann mund sem hann fær lögregluskýrsluna frá Selfossi. En eitt mega þeir eiga Lögreglan á Selfossi að þeir voru mjög fagmannlegir og snöggir að klára þessi mál þegar að kallið kom og er ég mjög ´n ægður með hvernig þeir hjálpuðu strákunum að komast í bæinn en Bjarki bað einn lögreglumanninn að keyra sinn bíl á Selfoss og fá að athuga með að blása í þar til gert tæki um hvort að hann geti farið á bílnum heim sem gekk eftir og kom hann heim snemma um morguninn þ.e. á sunnudagsmorgun.   Jæja hættur í bíli.... 10-4 over and out 


» 5 hafa sagt sína skoðun

08.03.2007 08:37:28 / Icefalcon

Fimmtudagur og nýmættur í vinnu

 

Ákvað að koma inn nokkrum línum um eiginlega ekki neitt. Búinn að vera að vinna ansi mikið síðan á föstudag enda einn um hituna hérna og gengur bara nokkuð vel en alveg öruggt að svona getur framghaldið ekki gengið. Fékk fréttir um að sá áhugasami um íbúðina er búinn að skíta á sig og treystir sér ekki í kaupin "Aumingi" en við strákarnir erum að meta Suðurgötuna og erum að sættast á að herbergin hjá strájunum eru í minna lagi þar sem báðir eru með risa rúm fyrir þessar óvæntu heimsóknir að næturlagi.  Erum að sikta aðra sem kemur til greina á Kelduhvammi en hún er ódýrari og kannski ef að einhver fær áhuga á okkar að við kýlum á þessa hver veit. Annars er ekki mikið að ske hérna nema að verið er að skoða launamál og aðra hluti og fréttir af því ætti að fara að koma í ljós fljótlega. Strákarnir eru að fara til Köben um miðjan maí og verða þeir að mér skilst hjá Huldu frænku, vona að þeir gangi vel um og séu duglegir að splæsa á stúlkuna í staðinn.   AHHHH síminn verð að fara bæjó  


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.03.2007 11:37:16 / Icefalcon

Sunnudagur og enn í vinnu

 

Eins og flestir vita að þá Hætti Guðbrandur hér fyrir nokkru (var búinn að skrifa en týndist þegar átti að staðfesta) og nýr maður tekinn við en sá vann með mér í yfir 20 ár á gamla vinnustaðnum þ.e.a.s. hjá hernum fyrir þá sem þekkja mig ekki. Sá nýji kastaði inná handklæðinu á föstudaginn og sagði að þetta væri voðalega flókið og ógeðslega leiðinleg vinna. Hvað á maður að halda um sjálfan sig þegar svona kemur upp í hverju hef ég verið að vinna eða vara ég bara að fórna mér í svona leiðinlegu... Ekkert skrýtið þó að maður verði stundum þungur í hugsun en mér finnst þetta eins og hinuym afspyrnu leiðinleg vinna og finnst mér versst að ég er búinn að eypileggja sjlafan mig á því hvað ég hef fitnað. OKAY OKAY það þarf líka að hreyfa sig veit veit ekki allt öllum hinum að kenna:$

Er að vonast til þess að það birtist tilboð í íbúðina og ég geti selt og keypt slotið sem mig langar svo en það er Suðurgata 76 í hfj.

Sit hér ídag þar sem jú eins og áður sagði einn eftir með hauga af verkefnum og ekki Þörf á öðru en að taka á því og standa í skilum þó að maður taki eina og eina helgi svona í vinnunni enda snjóði BIG TIME rúna rétt í þessu og bíllinn allur hvítur að framan en á laugardögum og sunnudögum þegar ég er að vinna að þá nota ég stóra bílskúrinn hér á Laugarveginum.

 

Jæja kannski að maður skrifi eitthvað fljótlega aftur nú þegar maður er að komast í vinnugírinn en skrýtið að mér líður betur núna að standa einn heldur en að vera með Partner í þessu sem þarf að kenna.

Meira seinna og skrifa svo í commentin hérna


» 3 hafa sagt sína skoðun

26.01.2007 20:11:57 / Icefalcon

Föstudagskvöld

Sit hér við tölvuna og hlusta á Mörtu mína sjá um matseld í eldhúsinu en við ákváðum (hún) að nú er þörf á að taka til í frystinum áður en að frostþurrkur setjist þar að og finnst mér voðalega huggulegt að hún sé þarna frammi og dundi við þetta...... Nú nú jólin eru mæt þ.e.a.s. Kortareikningarnir eru komnir og var það anis mikið áfall að fá þá báða en ég er með Mastercard og E-Veltukort :evil:Ekki sniðugt en náði ég að nurla saman fyrir þessu sem var ansi ansi ansi feitar upphæðir og er með hálfgerðan móral yfir eyðslunni..... Nadía sofnuð í sófanum og maturinn er kominn Marta var að reka á eftir    Skrifa meira seinna bæ bæ

» 4 hafa sagt sína skoðun

24.01.2007 18:48:13 / Icefalcon

Ekki veikur lengur

Jæja góðir hálsar fyrirgefiði framtaksleysið á þessu skrifleysi.

Lítið hefur gengið á hjá mér annað en að breytingar eru framundan hjá mér í Heklu þar sem samstarfsmaður minn til 6 ára ákvað að ganga til liðs við Ingva Helgason og mun starfa sem ábyrgðarstjóri hjá þeim. Leiðinlegt að missa hann Guðbrand en lífið heldur áfram og óska ég honum til hamingju  með stöðuna og vona að þetta verði honum til góðs í framtíðinni. Ekki er enn ljóst með hver verður ráðinn eða færður til hér í Heklu en nokkrir eru spenntir að fá að spreyta sig með mér. Nú, nú bílabreytingar hafa átt sér stað hjá strákunum og skipti Bjarki úr Skoda bíl yfir í svartan Passat Highline (meiriháttar flottur) og er Bjarki að rifna yfir bílnum. Birgir skipti á Pajerónum og fékk sér Audi  A 4 rétt um 3ja ára gamlan en meiriháttar græja, greiðslubyrðin lækkaði til muna hjá honum og vonandi gegnur honum betur í framtíðinni að safna aurum til framtíðar. Hjá mér er ekkert að frétta nema að nú er verið að ná fram samningum um kaup og kjör í Heklu og er ég ekki viss um að ég gangi ánægður frá því sem gefur þeim orðrómi undir fótin að óánægður starfsmaður endist ekki lengi í starfi og sækist eftir öðru umhverfi fljótlega...... Fór í Borgaleikhúsið með gömlu hjónunum á "Viltu finna Milljón" Meiriháttar leikrit Meiriháttar leikarar sé sko ekki eftir að hafa farið á þetta verk, vil gera meira af þessu fljótlega. Íbúðin hefur ekkert hreyfst en fer fljótlega í að skerpa á þessu og jafnvel hafa opið hús, eitthvað sem sölumenn segja að ýti vel við í sölu. Íbúðin á Suðurgötunni bíður eftir mér og held ég að  "is meant to be"  ég eigi að  flytji á Suðurgötuna.

Jæja nú er mál að sinni en Birgir minn er að koma heim og við ætlum að finna okkur eitthvað í svanginn.    Ég lofa að skrifa aftur fyrir helgina meira.


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.12.2006 09:57:01 / Icefalcon

Heima veikur

Jæja þar kom að því að maður fengi smá pest.

Sit hérna heima með stíflað nef og vott af ónotum sem allir þekkja.:cry: Bíð enn eftir að millifærslan af jeppanum eigi sér stað svo að hægt sé að losa sig undan verkjum vegna neyslunnar sem safnast hefur upp. Ekki mikið að ske hjá manni en ákveðið hefur verið að ég loksins verði vitni að því þegar börnin mín opna jólapakkana á aðfangadag en síðar um kvöldið fer ég til mömmu og pabba í stutta heimsókn. Nonni fer til þeirra í þetta skiptið og er ég með smá samviskubit vegna þess að ég hef alltaf farið til þeirra á aðfangadag klukkna 6. Er pínu spenntur yfir því að vera þarna og sérstaklega að fylgjast með litlu buddunni henni Nadíu en hún er 3ja ára og á besta aldri til þess að missa sig alveg yfir pakkaflóðinu.  8|

Meira seinna er að fara aftur í rúmið að sofa úr mér flensuna......:frown:


» 4 hafa sagt sína skoðun

16.12.2006 17:55:28 / Icefalcon

Meira á laugardegi

Sæl

Jæja ný færsla.

Jeppinn seldist í gær á bara ágætisverði og er ég feginn að stija ekki með svona dýra fjárfestingu. Fór með Nadíu á jólaball hjá Heklu og kom fram mikil fóbía útí jólasveininn, reyndi árangurslaust að fikra okkur nær en allt kom fyrir ekki og að lokum vildi hún bara fara heim. Við fórum í Kringluna og kíktum á mömmu sem var í miklum önnum og gat lítið sinnt okkur og þá fórum við að labba um í Kringlunni. Life after work er byrjað og verðum við bara að sjá til hvernig tekst til með að skilja á milli vinnunnar og afterlife........

Meira seinna er með Nadíu hérna núna og er hún að horfa á sjónvarpið og borða ís :D


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.12.2006 13:14:31 / Icefalcon

Aftur í loftið

Sæl veriði.

Long time no see.

Jæja það helsta sem á mína daga hefur drifið er að ég er búinn að setja íbúðina á sölu og jeppann, nokkrir búnir að koma að skoða og ekki vitað um tilboð strax enda er þetta kannski ekki tíminn nú þegar fólk er að nurla saman fyrir jólagjöfunum. Jeppinn er þessa helgina hjá miklum sérvitringi og bað Bílasala Selfoss (Hekla) um hvort að þessi maður gæti fengið bílinn lánaðann heim í skúr og skoða bílinn. Spurt var hvort að þetta væri óhætt, hvort að þeir þekktu manninn svo og hvort að þeir ábyrgist þetta sem þeir jú staðfestu. Commentað var að í versta falli fái ég bílinn stífbónaðann á mánudag og í besta falli náttúrulega að hann kaupi dótið.:haha:

Búinn að finna íbúðina sem mig langar í en hún er á Suðugötu 76 í hfj og íbúðin sem og restin af húsinu er hönnuð af Kjartani Sveinssyni sem var einhver mikill gúru og mikils metin hér áður fyrr:$ Ekki er um að tala að selja bústað til þess að eiga fyrir þessum herlegheitum en eitthvað þarf ég að bæta við til þess að þetta gangi upp, á von á að ég sé gjaldgengur í bankakerfinu með nokkrar millur í viðbót.

Lítið annað skeð nema að Bjarki er byrjaður hjá Heldi (Bílaleiga Akureyrar)og gengur ágætlega ég vinn og vinn en missti sjónar á strikinu á milli vinnu og einkalífs en það stendur til að skerpa á þessu og fara að lifa lífinu lifandi :haha::haha::haha:

Veðrið í nótt var ekki svo slæmt hérna uppi, ekki eins og ég átti von en loksins búið og hægt er að fara að kíkja út og hafa gluggana opna.

Jæja má ekki klára allt í einu verðum í bandi og commentið eins og kurteisu vel upp öldu fólki með yfir í meðallagi háa greindarvísitölu.... Þeir sem ekki gera það vita í hvaða flokk þeir settu sig sjálfir....

Lína dagsins er "Wise men don't need advice. Fools won't take it."


» 3 hafa sagt sína skoðun